Upplýsingar

Auglýsing um viðurkenningu erlendra kennivottorða og undanþágu frá skyldu til að hafa vegabréfsáritun.

1. gr.

Útlendingur skal við komu til landsins og brottför hafa vegabréf, sbr. 2. og 3. gr. reglugerðar um eftirlit með útlendingum, nr. 148/1965, eða vera með kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki.


2. gr.

Eftirtalin kennivottorð önnur en vegabréf (þjóðernisvegabréf), gefin út af þar til bæru yfirvaldi hlutaðeigandi ríkis eða stofnunar, eru viðurkennd sem ferðaskilríki í stað vegabréfs.

  1. Hópvegabréf, sameiginleg vegabréf.
    Sameiginlegt vegabréf (hópvegabréf, sameiginlegt vegabréf) fyrir marga útlendinga er gilt sem ferðaskilríki, sbr. 4. gr. reglugerðar um eftirlit með útlendingum, nr. 148/1965. Ef sameiginlega vegabréfið er gefið út í samræmi við Evrópusamning um ferðalög æskufólks á sameiginlegum vegabréfum frá 16. desember 1961, má í sameiginlega vegabréfinu, auk þeirra sem eru ríkisborgarar í útgáfuríkinu, skrá ríkisfangslausa og flóttamenn yngri en 21 árs, sem dvelja löglega í útgáfuríkinu.
  2. Ferðaskilríki fyrir flóttamenn.
    Ferðaskilríki fyrir flóttamenn sem gefið er út í samræmi við samning um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 er gild ferðaheimild. 
  3. Ferðaskilríki fyrir ríkisfangslausa.
    Ferðaskilríki sem gefið er út samkvæmt samningi um réttarstöðu ríkisfangslausra ein-staklinga frá 28. september 1954 er gild ferðaheimild. 
  4. Útlendingavegabréf, endurkomuleyfi.
    Skilríki sem gefið er út af þar til bæru yfirvaldi til þess, sem er ríkisfangslaus, eða er ríkisborgari í öðru landi en því, sem gefið hefur út skjalið, gildir sem ferðaheimild, enda uppfylli það að öðru leyti skilyrði sem sett eru í 2. gr. reglugerðar um eftirlit með útlend-ingum, nr. 148/1965. 
  5. Kennivottorð.
    Kennivottorð gefin út til ríkisborgara hlutaðeigandi lands eru gild ferðaskilríki við komu til landsins eða brottför:
    • Austurríki: Personalausweis.
    • Belgía: Carte d'Identité (Identiteitskaart, Personal-ausweis, Identity card).
    • Frakkland: Carte Nationale d'Identité.
    • Grikkland: Deltio Taytotitas.
    • Holland: Identiteitskaart A og B (Toeristenkaart), útgefin fyrir 1. janúar 1995.
      Europese identiteitskaart (European Identity Card, Carte d'Identite Europeenne), útgefin eftir 31. desember 1994.
    • Ítalía: Carta d'Identità. Í reitnum "Cittadinanza" á bls. 2 skal standa "Italiana". Skilríki fyrir barn gildir þó eingöngu þegar barnið er í fylgd með forráðamanni.
    • Liechtenstein: Identitätskarte (Carte d'Identité, Carta d'Identità).
    • Lúxemborg: Carte d'Identité (Identitätskarte, Identity Card).
      Titre d'Identité et de Woyage (Kinderausweis).
    • Portúgal: Bilhete de Identidade de Cidadao Nacional.
    • Spánn: Documento Nacional de Identidad.
    • Sviss: Carte d'Identité Citoyen Suisse (Identitätskarte Schweizerbürger, Carta d'Identità Cittadino Svizzero, Carta d'Identitad Burgais Svizzer).
      Identitätskarte (Carte d'Identité, Carta d'Identità, Carta d'Identitad, Identity Card), útgefin eftir 30. júní 1994.
    • Þýskaland: Personalausweis.
      Kinderausweis.
      Behelfsmässiger Personalausweis.
      Reiseausweis als Passersatz. Ef ferðaskilríkið er án ljósmyndar af handhafa er áskilið að útrunnu vegabréfi eða "Personalausweis" verði jafnframt framvísað.
  6. Sjóferðabækur.
    Sjóferðabók (seaman's book, seafarer's identity document) sem gefin er út í samræmi við ILO-samning um persónuskilríki sjómanna nr. 108 frá 1958 er gild ferðaheimild við komu til og brottför frá landinu ásamt skjölum er sýna fram á skráningu í eða úr skipsrúmi, í íslenskri eða erlendri höfn. 
  7. Skilríki fyrir flugáhafnir.
    Áhafnarskírteini sem gefin eru út af þar til bæru yfirvaldi í aðildarríki að Alþjóða-flugmálastofnuninni (ICAO), er gilt ferðaskilríki við komu til landsins, tímabundna dvöl og brottför frá landinu fyrir þá sem sýna fram á að þeir séu skráðir í áhöfn loftfars sem er á Íslandi. 
  8. Handhafar NATO "Travel Order - Ordre de Mission OTAN."
    Handhafar NATO "Travel Order - Ordre de Mission OTAN" (starfsmenn NATO sem hafa stöðu hermanna) mega koma til landsins enda hafi þeir herkennivottorð og sérstök eða sameiginleg ferðafyrirmæli NATO. 
  9. Handhafar "Leave order".
    Handhafar "Leave order" NATO mega koma til Íslands og dvelja þar í allt að 3 mánuði enda hafi þeir herkennivottorð og gilda ferðaheimild til Íslands. 
  10. Ferðaskírteini fyrir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna.
    Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sérstofnana Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða-kjarnorkumálastofnunarinnar sem eru handhafar ferðabréfa (laissez-passer) Sameinuðu þjóðanna mega koma til landsins þegar þeir eru á ferðalögum í þágu framangreindra stofnana, enda framvísi þeir jafnframt ferðabréfi, yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eða þeirrar stofnunar, sem þeir starfa hjá, um það að þeir séu að reka erindi Sameinuðu þjóðanna eða viðkomandi stofnunar. 
  11. Handhafar gildra ferðabréfa (Ausweis, Laissez-passer, Lascia-passare) sem gefin eru út af Evrópusambandinu.


3. gr.

Útlendingar sem falla undir ákvæði þessarar greinar eru undanþegnir skyldu til að hafa vegabréfsáritun við komu til landsins:

  1. Ríkisborgarar eftirfarandi ríkja:
    ANDORRA
    ARGENTÍNA
    AUSTURRÍKI
    ÁSTRALÍA
    BANDARÍKI NORÐUR AMERÍKU
    BELGÍA
    BRASILÍA
    BÓLIVÍA
    DANMÖRK
    EISTLAND
    EKVADOR
    EL SALVADOR
    FINNLAND
    FRAKKLAND
    GRIKKLAND
    GVATEMALA
    HOLLAND
    HONDÚRAS
    ÍRLAND
    ÍSRAEL
    ÍTALÍA
    JAPAN
    KANADA
    KOSTARÍKA
    KRÓATÍA
    KÝPUR
    LETTLAND
    LIECHTENSTEIN
    LITHÁEN
    LÚXEMBORG
    MALASÍA
    MALTA
    MEXÍKÓ, þó eru handhafar diplómatískra- og þjónustuvegabréfa ekki undanþegnir skyldu til að hafa vegabréfsáritun.
    MÓNAKÓ
    NÍKARAGÚA
    NOREGUR
    NÝJA-SJÁLAND
    PANAMA
    PARAGVÆ
    PÁFAGARÐUR
    PORTÚGAL
    PÓLLAND
    SAN MARÍNÓ
    SÍLE
    SINGAPÚR
    SLÓVAKÍA
    SLÓVENÍA
    SPÁNN
    STÓRA-BRETLAND, þar með talið: Bermúda, Turks- og Caicos eyjar, Cayman eyjar, Anguilla, Montserrat, Bresku Jómfrúreyjar, St. Helena, Falklandseyjar, Brunei og Gíbraltar.
    SUÐUR-KÓREA
    SVISS
    SVÍÞJÓÐ
    TÉKKLAND
    UNGVERJALAND
    ÚRÚGVÆ
    VENESÚELA
    ÞÝSKALAND

  2. Diplómatar og sambærilegir:
    Handhafar diplómata-, opinberra- og þjónustuvegabréfa frá Tyrklandi eru undanþegnir skyldu til að bera vegabréfsáritun við komu til landsins.
    Handhafar diplómatískra og þjónustuvegabréfa frá Pakistan og Suður-Afríku eru undanþegnir skyldu til að bera vegabréfsáritun við komu til landsins.
    Handhafar diplómatískra vegabréfa frá Búlgaríu og Rúmeníu eru undanþegnir skyldu til að bera vegabréfsáritun við komu til landsins.
  3. Flugáhafnir.
    Áhafnarskírteini sem gefin eru út af þar til bæru yfirvaldi í aðildarríki að Alþjóða-flugmálastofnuninni (ICAO) fyrir þá sem sýna fram á að þeir séu skráðir í áhöfn loftfars sem er á Íslandi. 
  4. Handhafar NATO "Travel Order - Ordre de Mission OTAN."
    Handhafar NATO "Travel Order - Ordre de Mission OTAN" (starfsmenn NATO sem hafa stöðu hermanna) mega koma til Íslands enda hafi þeir herkennivottorð og sérstök eða sameiginleg ferðafyrirmæli NATO. 
  5. Handhafar "Leave order."
    Handhafar "Leave order" NATO mega koma til Íslands með herkennivottorð og gilda ferðaheimild til Íslands.
  6. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna.
    Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sérstofnana Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða-kjarnorkumálastofnunarinnar sem eru handhafar ferðabréfa (laissez-passer) Sameinuðu þjóðanna mega koma til landsins án vegabréfsáritunar þegar þeir eru á ferðalögum í þágu framangreindra stofnana, enda framvísi þeir jafnframt ferðabréfi, yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eða þeirrar stofnunar, sem þeir starfa hjá, um það að þeir séu að reka erindi Sameinuðu þjóðanna eða viðkomandi stofnunar. 
  7. Ferðabréf Evrópusambandsins.
    Handhafar gildra ferðabréfa (Ausweis, Laissez-passer, Lascia-passare) sem gefin eru út af Evrópusambandinu. 
  8. Ferðaskilríki fyrir flóttamenn.
    Handhafar gildra ferðaskilríkja fyrir flóttamenn sem gefin eru út í samræmi við samning um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 gilda sem ferðaheimild. Undanþágan frá áritun er háð því að ferðaskilríkið sé gefið út af Belgíu, Kýpur, Danmörku, Finnlandi, Hollandi, Írlandi, Ítalíu, Liechtenstein, Lúxemborg, Möltu, Noregi, Portúgal, Sviss, Spáni, Stóra-Bretlandi, Svíþjóð, Tékklandi eða Þýskalandi og að handhafi þess búi löglega í því ríki sem gaf það út.
  9. Útlendingavegabréf.
    Handhafar gildra danskra, finnskra, íslenskra, norskra eða sænskra útlendingavegabréfa. Undanþágan frá áritun er háð því að í útlendingavegabréfinu sé heimild til endurkomu til þess ríkis sem gaf það út. 
  10. Dvalarleyfi.
    Handhafar gildra og viðurkenndra dvalarleyfa sem gefin eru út af íslenskum eða öðrum yfirvöldum í ríki sem tekur þátt í Schengensamstarfinu. 
  11. Ungir ríkisfangslausir og flóttamenn sem skráðir eru í hópvegabréf.
    Ríkisfangslausir og flóttamenn yngri en 21 árs, sem eru skráðir í hópvegabréf sem gefið er út í samræmi við Evrópusamning um ferðalög æskufólks á sameiginlegum vegabréfum frá 16. desember 1961 og sem dvelja löglega í útgáfuríkinu. 
  12. Lið Bandaríkjanna samkvæmt varnarsamningi, skyldulið eða starfsmenn.
    Handhafar flutningsheimildar (movement order) eða flutningssamnings (transport agreement).


4. gr.

Ríkisborgarar frá Afganistan, Bangladesh, Kongó (alþýðulýðveldi), Eritreu, Eþíópíu, Gana, Írak, Íran, Nígeríu, Pakistan, Sómalíu og Sri Lanka skulu í gegnumferð um íslenska flughöfn, með eða án þess að skipta um flugvél, vera með gilda íslenska vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn.
Að svo miklu leyti sem ríkisborgarar þessara ríkja eru undanþegnir skyldu til að hafa vegabréfsáritun í samræmi við ákvæði 2. gr. eru þeir undanþegnir vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn.
Ríkisborgarar þessara ríkja, sem hafa dvalarleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu, Andorra, Bandaríkjum Norður-Ameríku, Japan, Kanada, Mónókó, San Marínó og Sviss eru undan-þegnir skyldu til að hafa vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn þegar viðkomandi hefur heimild til endurkomu til dvalarríkisins, er gildir í 3 mánuði lengur en dvöl í gegnumferðarsvæði flughafnar.


 

5. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. gr. laga um eftirlit með útlendingum, nr. 46/1965, sbr. 1. gr. laga nr. 25/2000, öðlast gildi 25. mars 2001.
Jafnframt fellur úr gildi:
auglýsing um viðurkenningu erlendra kennivottorða annarra en vegabréfa, nr. 434 13. júlí 1998,
auglýsing um afnám vegabréfsáritana fyrir bandaríska og kanadíska ríkisborgara, nr. 21 14. mars 1962,
auglýsing um afnám vegabréfsáritana fyrir borgara Páfaríkis, nr. 39 26. febrúar 1971,
auglýsing um afnám vegabréfsáritana fyrir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, nr. 40 26. febrúar 1971,
auglýsing um afnám vegabréfsáritana fyrir ríkisborgara Andorra, nr. 113 31. janúar 1997.


 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 23. mars 2001.
Sólveig Pétursdóttir.
Þorsteinn A. Jónsson.



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica