Kirkjumál og trúfélög

Kirkjumál og trúfélög

Biskup Íslands

  • Biskupskjör.
  • Prestaskipanir.
  • Prestaköll og prófastsdæmi.
  • Prestastefnur.
  • Embættisprestar erlendis.
  • Starfsþjálfun guðfræðikandidata.
  • Kirkjubækur.
  • Sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld.
  • Kirkjuráð og kirkjuþing.
  • Prestsetrasjóður.
  • Kristnisjóður.
  • Meðferð stjórnsýslukæra.
  • Námsleyfi presta.
  • Starfsmannamál
Kirkjugarðar og útfararþjónusta

Listi yfir skráð trúfélög utan þjóðkirkjunnar

Um sóknargjald

Sóknargjald, sem manna á meðal er oft kallað kirkjuskattur eða félagsgjöld trúfélaga, er eiginlega nefskattur sem gjaldskyldir menn greiða. Samkvæmt lögum nr. 91/1987 er kveðið á um að þjóðkirkjan og skráð trúfélög eigi ákveðna hlutdeild í tekjuskatti. Sóknargjaldið reiknast fyrir hvern þann sem orðinn er 16 ára hinn 31. desember árið áður en gjaldár hefst. Gjald einstaklings sem skráður er í þjóðkirkjunni rennur til þess safnaðar sem hann tilheyrir. Gjald einstaklings sem tilheyrir skráðu trúfélagi rennur til hlutaðeigandi trúfélags. Gjald einstaklinga, sem hvorki eru í þjóðkirkjunni né skráðu trúfélagi, rann til skamms tíma til Háskóla Íslands. Það hefur nú verið fellt niður og þess í stað fær Háskóli Íslands bein framlög frá ríkissjóði.

Fjárhæð sóknargjaldsins á árinu 2010 er 767 kr. á mánuði.








Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica