Greiðsluaðlögun
Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur samið við Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna um að annast upplýsingagjöf um úrræðið. Hægt er að hafa samband þangað símleiðis, sími 551-4485, en á vef hennar, www.rad.is, er einnig að finna greinargóðar upplýsingar.
Greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda
Með lögum nr. 24/2009 um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991, sem tóku gildi 1. apríl 2009, var einstaklingum gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Þau lög taka til annarra krafna en veðskulda. Reglugerð nr. 335/2009, sem sett var á grundvelli laganna, var gefin út sama dag. Þar er Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna falið að annast endurgjaldslausa aðstoð við gerð beiðna um greiðsluaðlögun.
- Sjá ítarefni um greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda hér.
