Nefndir

Gjafsóknarnefnd

Lög um meðferð einkamála nr. 91/1991. , kafli XX, gr. 125-128 um gjafsókn.

Þar segir í 125. gr.:

1. Í þessum kafla er orðið gjafsókn notað bæði um gjafsókn og gjafvörn.

2. Dómsmálaráðherra skal skipa nefnd þriggja lögfræðinga, gjafsóknarnefnd, til fjögurra ára í senn til að veita umsögn um umsóknir um gjafsókn. Einn nefndarmanna skal skipaður eftir tilnefningu Lögmannafélags Íslands en annar eftir tilnefningu Dómarafélags Íslands. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur í reglugerð um starfshætti gjafsóknarnefndar, þar á meðal um viðmiðunarmörk í mati hennar á skilyrðum fyrir gjafsókn skv. a-lið 1. mgr. 126. gr.

3. Umsókn um gjafsókn skal vera skrifleg og beint til dómsmálaráðherra. Í henni skal greint skýrlega frá máli sem hún varðar og rökstutt að skilyrðum fyrir gjafsókn sé fullnægt. Umsókn skulu fylgja gögn eftir þörfum.

4. Dómsmálaráðherra veitir gjafsókn eftir umsókn aðila. Hún verður því aðeins veitt að gjafsóknarnefnd mæli með því.

Reglugerð 69/2000 um starfshætti gjafsóknarnefndar.

Almennar upplýsingar varðandi gjafsókn


Nefndina skipa frá og með 1. júlí 2008 til og með 30. júní 2012:

  • Þorleifur Pálsson, formaður, skipaður án tilnefningar
  • Ásgeir Thoroddsen, hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands
    Varamaður: Ólafur Gústafsson, hæstaréttarlögmaður.
  • Helgi I. Jónsson, héraðsdómari, tilnefndur af Dómarafélagi Íslands
    Varamaður: Sigríður Ólafsdóttir, héraðsdómari.





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica