Stjórnarráð Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Upplýsingar

Barnaréttur - forsjá barns

11.12.2003

aftur á yfirlitssíðu barnaréttar

Hvað felst í því að fara með forsjá?

Barn á rétt á forsjá foreldra sinna, annars eða beggja.

Sá sem fer með forsjá barns ræður persónulegum högum barnsins, ákveður búsetu þess og fer einnig með lögformlegt fyrirsvar þess, t.d. í dómsmáli. Forsjármaður skal annast barn, sjá því fyrir mat, klæðnaði og húsnæði og vernda það fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi og annarri vanvirðandi háttsemi. Þá felur forsjá í sér skyldu til að sjá til þess að barn fái lögmælta fræðslu.

Barn á rétt á umhyggju og virðingu og forsjármaður skal sinna forsjár- og uppeldisskyldum sínum í samræmi við það sem barninu er fyrir bestu.

Forsjárforeldri sem fer eitt með forsjá er skylt að stuðla að því að barn njóti umgengni við hitt foreldri sitt.

Foreldrar skulu hafa samráð við barn sitt um málefni þess eftir því sem barn hefur þroska til. Afstaða barns skal fá aukið vægi eftir því sem barnið eldist og þroskast.

Fari foreldrar sameiginlega með forsjá barns og annað þeirra getur ekki sinnt forsjárskyldum sínum eru nauðsynlegar ákvarðanir hins um persónulega hagi barnsins gildar.

Ef foreldrar fara sameiginlega með forsjá barns er öðru foreldra óheimilt að fara með barnið úr landi án samþykki hins.

Hverjir fara með forsjá?

Forsjá ákveðin í barnalögum:
Foreldrar í hjónabandi fara sameiginlega með forsjá barns.

Foreldrar sem skráð hafa sambúð sína í þjóðskrá fara sameiginlega með forsjá barns.

Móðir fer ein með forsjá barns ef hún er hvorki í hjúskap né skráðri sambúð.

Stjúpforeldri barns fer með forsjá þess ásamt maka sínum meðan hjúskapur varir ef foreldrarnir hafa ekki samið um sameiginlega forsjá.

Sambúðarforeldri barns fer með forsjá þess ásamt foreldri barnsins meðan sambúð varir, enda hafi skráð sambúð í þjóðskrá staðið samfleytt í eitt ár. Þetta á einungis við ef foreldrarnir hafa ekki samið um sameiginlega forsjá.

Forsjá við skilnað eða slit skráðrar sambúðar

Eins og að framan greinir er forsjá sameiginleg ef foreldrar eru giftir eða í skráðri sambúð. Forsjáin heldur áfram að vera sameiginleg þrátt fyrir skilnað foreldra eða slit skráðrar sambúðar, nema annað sé sérstaklega ákveðið. Foreldrar þurfa því ekki að gera sérstakan samning um sameiginlega forsjá við samvistarslitin en verða á hinn bóginn að skýra sýslumanni frá því hjá hvoru barnið á að eiga lögheimili og þar með fasta búsetu í skilningi barnalaga. Lögum samkvæmt ber sýslumanni að leiðbeina foreldrum um inntak sameiginlegrar forsjár og um þau réttaráhrif sem skráning lögheimilis barns hefur í för með sér.

Ef foreldrar af einhverjum ástæðum vilja ekki að forsjáin verði sameiginleg áfram eftir samvistarslit geta þeir samið um að annað þeirra fari með forsjána. Sýslumaður verður að staðfesta slíkan samning svo hann öðlist gildi.

Ef ágreiningur rís um forsjá í tengslum við samvistarslit geta foreldrar borið ágreininginn undir dómara, sbr. nánar hér síðar.

Forsjá við andlát forsjárforeldris

Ef foreldrar fara sameiginlega með forsjá barns við andlát annars þeirra fer eftirlifandi foreldri með forsjá. Þetta á við hvort sem foreldrar eru í hjónabandi, skráðri sambúð eða hafa samið um sameiginlega forsjá. Ef eftirlifandi foreldri er í hjónabandi eða skráðri sambúð (sem staðið hefur samfleytt í eitt ár) fer það með forsjá ásamt maka eða sambúðarmaka.

Ef foreldri sem fer eitt með forsjá barns fellur frá færist forsjá þess til eftirlifandi foreldris.

Ef eingöngu annað foreldra hefur farið með forsjá barns og er í hjónabandi eða skráðri sambúð (sem staðið hefur samfleytt í eitt ár) fer eftirlifandi stjúpforeldri eða sambúðarforeldri áfram með forsjá við andlát foreldrisins. Þessi regla leiðir til þess að ekki verða meiriháttar breytingar í lífi barns við andlát forsjárforeldris heldur á barnið þá rétt á að vera um kyrrt á heimili sínu þar til samkomulag kann að verða um annað eða dómari ákveður annað.

Við andlát forsjárforeldris er hægt með samningi eða dómi að fela öðrum forsjá barns (að kröfu hans) en þeim sem sjálfkrafa fær forsjá, ef það er barni fyrir bestu. Falli forsjá barns t.d. til stjúp- eða sambúðarforeldris getur forsjárlaust foreldri óskað eftir forsjá barnsins.

Ef barn verður forsjárlaust vegna andláts forsjárforeldra færist forsjá þess til barnaverndarnefndar. Þetta á við þegar barn hefur við andlát forsjárforeldris áður misst hitt foreldra sinna, þegar hið fyrrnefnda er hvorki í hjúskap né skráðri sambúð. Einnig á þetta við þegar foreldrar látast samtímis, t.d. af slysförum.

Ef forsjárforeldrar hafa ákveðið hverjir skuli fara með forsjá barns að þeim látnum ber að fara eftir því nema annað þyki barni fyrir bestu. Yfirlýsing foreldra skal gefin bréflega og skal undirritun hennar staðfest af sýslumanni eða lögmanni. Ef breyting verður gerð á forsjá við fráfall forsjárforeldris þarf að gera samning milli þess sem fær forsjá barns sjálfkrafa samkvæmt lögum, t.d. hins foreldrisins eða stjúpforeldris og þess sem forsjárforeldri hefur ákveðið að forsjá skuli falla til samkvæmt áðurnefndri yfirlýsingu. Ef ekki næst samkomulag verður að bera mál undir dómstól.

Stjúpforeldri eða sambúðarmaki sem fór með forsjá barns fyrir gildistöku barnalaga nr. 76/2003 fer áfram með forsjá þess að óbreyttum aðstæðum.

Samningar um forsjá

Foreldrar geta ávallt samið um forsjá barna sinna. Til þess að samningur foreldra öðlist gildi þarf sýslumaður að staðfesta hann.


Sameiginleg forsjá

Foreldrar geta samið um sameiginlega forsjá þegar forsjá barns er aðeins í höndum annars foreldris, t.d. strax eftir fæðingu barns og þegar foreldrar eru ekki í skráðri sambúð. Foreldrar þurfa að vera sammála um hjá hvoru þeirra barn á að eiga lögheimili. Barnið dvelst þá að jafnaði hjá því foreldra sem það á lögheimili hjá, en dvelst hjá hinu á tilteknum tíma. Sá sem barnið býr hjá tekur ákvarðanir um daglegar þarfir barnsins hverju sinni. Samþykki beggja foreldra þarf hins vegar að koma til varðandi allar meiriháttar ákvarðanir sem varða persónulega hagi barnsins. Sýslumaður getur úrskurðað um meðlag og umgengni þótt foreldrar fari sameiginlega með forsjá barns eins og sagt er frá í köflum um umgengni og meðlag. Foreldri sem barn er með lögheimili hjá hefur réttarstöðu einstæðs foreldris samkvæmt skattalögum.

Forsjá hjá öðru foreldra
Foreldrar geta samið um að forsjá sem hefur verið sameiginleg verði framvegis í höndum annars foreldris. Þetta getur átt við þegar foreldrar skilja eða slíta skráðri sambúð og eins þegar foreldrar vilja breyta samningi um sameiginlega forsjá. Foreldrar geta einnig samið um breytingu á forsjá barns þannig að forsjá flytjist frá öðru foreldri til hins.

Tímabundin forsjá
Foreldrum er heimilt að gera tímabundna samninga um forsjá barns.

Þar sem almennt er talið barni fyrir bestu að festa ríki um forsjá þess er ekki heimilt að gera samning um tímabundna forsjá í styttri tíma en sex mánuði.

Margar ástæður geta legið til þess að foreldrar kjósi að gera samning um tímabundna forsjá. Barn vill e.t.v. prófa að búa hjá því foreldri sem ekki fer með forsjá og foreldrar vilja láta reyna á það tímabundið. Þá geta tímabundnar breytingar hjá forsjárforeldri leitt til þess að rétt þyki að breyta forsjá meðan að á þeim stendur. Þessar breytingar geta t.d. verið vegna veikinda forsjárforeldris eða dvalar erlendis við nám eða störf.

Þegar samningur um tímabundna forsjá rennur út fer forsjá barnsins aftur í fyrra horf. Þegar foreldrar ákveða tímabundna forsjá við skilnað eða samvistarslit verða þeir að ganga frá forsjá að nýju þegar samningurinn rennur út.

Hvað á að gera ef foreldrar eru ósammála um forsjá?

Sérfræðiráðgjöf
Foreldrar eiga kost á sérfræðiráðgjöf í forsjárdeilum til þess að aðstoða þá við að leysa ágreining um forsjá. Sá sérfræðingur sem veitir ráðgjöfina getur rætt við barnið, ef hann telur að það komi að gagni, en það er skilyrði að forsjárforeldrar samþykki það. Ráðgjöfin er foreldum að kostnaðarlausu og fer hún fram á embætti sýslumanns.

Dómsmál
Ef foreldrar ná ekki samkomulagi um forsjá barns verður að höfða forsjármál fyrir dómi. Er þá rétt að leita aðstoðar lögmanns.

Í dómsmáli ákveður dómari hjá hvoru foreldra forsjá barns verður eftir því sem hann telur barninu vera fyrir bestu. Dómari getur ekki ákveðið að foreldrar fari sameiginlega með forsjá en foreldrar geta hins vegar gert um það sátt fyrir dómi.

Atriði sem koma til skoðunar við ákvörðun um forsjá
Þegar dómari tekur ákvörðun um forsjá barns kemur margt til skoðunar. Eftirfarandi atriði koma fram í greinargerð með barnalögum:
  • Tengsl barns við hvort foreldra um sig.
  • Hver hefur annast daglega umönnun og umsjá barns.
  • Persónulegir eiginleikar og hagir hvors foreldris um sig og barnsins. Má hér nefna m.a. geðræna heilsu foreldra og heilsufar almennt og hvort foreldra telst hæfara til að sinna þörfum barns og skilningur foreldra á þörfum þess.
  • Mikilvægt er að barni sé veittur kostur á að tjá sig um forsjármálið. Engin ákveðin viðmiðun er um aldursmörk í þessu sambandi en eftir því sem barn verður eldra hafa óskir þess meira vægi.
  • Sú meginregla að ung börn fylgi móður og eftir atvikum drengir feðrum en stúlkur mæðrum hefur ekki jafnmikið vægi í norrænum dómum og áður var. Matið á að vera sem sjálfstæðast og einstaklingsbundið án tillits til slíkra reglna, með þarfir barnsins að leiðarljósi.
  • Oft er vikið að því að varhugavert sé að sundra systkinahópi. Í þessu sambandi skiptir þó máli á hvaða aldri börnin eru og hversu samrýmd þau eru.
  • Athuga þarf húsnæði sem hvort foreldra um sig getur boðið upp á, skóla, leikskóla og umhverfið allt.
  • Liðsinni vandamanna hvors um sig og nágrenni við þá.
  • Oft er það mikið álag fyrir barn að fara úr þekktu umhverfi, frá skólafélögum og vinum og flytja í óþekkt umhverfi. Almennt er því talið æskilegt að barn geti verið áfram í sama umhverfi eftir samvistarslit foreldra.
  • Umgengni barns og forsjárlauss foreldris. Vaxandi áhersla er lögð á rétt og þörf barns til þess að viðhalda tengslum við það foreldra sinna sem ekki fer með forsjá þess. Það skiptir því máli við úrlausn forsjármáls hvort foreldra er líklegra til að viðhalda eðlilegri umgengni barns við hitt foreldra sinna til frambúðar og rétt að kanna sérstaklega afstöðu foreldra til þess.
  • Þá segir í greinargerðinni að ekki sé þörf á að taka fram að sök foreldra á skilnaði skipti hér ekki máli. Ólögmæt sjálftaka foreldris á barni getur skapað því lakari stöðu en ella, en einnig í því tilviki er það reglan um þarfir barnsins sem sitja á í fyrirrúmi.

Ákvörðun um umgengni og meðlag í forsjármáli
Annað foreldra eða báðir geta gert kröfu um það í forsjármáli að einnig verði ákveðið meðlag og umgengni, ef foreldrar eru ekki sammála.

Úrskurður til bráðabirgða um forsjá barns
Í forsjármáli getur dómari ákveðið hvort foreldra skuli fara með forsjá barns til bráðabirgða, þ.e. á meðan á forsjármálinu stendur. Einnig getur dómari ákveðið meðlag og umgengni til bráðabirgða. Forsjármál eru oft lengi til meðferðar og ef ágreiningur er mikill milli foreldra getur verið nauðsynlegt að ákveða að forsjáin skuli vera hjá öðru þeirra á meðan málið er til meðferðar. Til að tryggja að barn haldi tengslum við báða foreldra meðan að á máli stendur getur einnig verið nauðsynlegt að ákveða umgengni við það foreldri sem barn býr ekki hjá.

Dómari getur einnig hafnað því að sameiginleg forsjá falli niður meðan forsjármál er til meðferðar fyrir dómi. Hann getur þá ákveðið hjá hvoru foreldra barnið eigi að eiga lögheimili, einnig um umgengni og meðlag til bráðabirgða meðan forsjármálið er til meðferðar. Þegar svona stendur á getur dómari einnig ákveðið að barnið búi hjá foreldrum sínum á víxl.

Farbann
Á meðan forsjármál er til meðferðar hjá héraðsdómi eða Hæstarétti er hægt að úrskurða að óheimilt sé að fara með barn úr landi meðan máli er ekki lokið.

Gagnaöflun - sönnunargögn
Dómari fylgist með öflun sönnunargagna og sér um að þau séu fullnægjandi þannig að unnt sé að ákveða hvort foreldra skuli fara með forsjá.

Í mörgum forsjármálum er álitsgerð sérfræðinga, t.d. sálfræðinga, það gagn sem mesta þýðingu hefur. Í álitsgerð koma venjulega fram þau atriði sem nauðsynlegt er að fá fram. Það eru atriði sem varða hagi foreldra og hæfi, aðstæður og hagi barns, tengsl þess við foreldra og margt fleira. Sérfræðingarnir athuga aðstæður foreldra, taka við þá viðtöl og leggja þegar þörf er á fyrir þá sálfræðileg próf. Þeir ræða eftir atvikum við barnið sem í hlut á og kanna afstöðu þess ef barnið hefur til þess nægilegan þroska og leggja e.t.v. fyrir yngra barn tengslapróf. Þá ræða sérfræðingarnir oft við aðra sem þekkja vel til foreldra og barns.

Dómari er ekki bundinn af álitsgerð sérfræðings heldur ber honum að taka ákvörðun í málinu eftir því sem hann telur að viðkomandi barni sé fyrir bestu.

Réttur barns til þess að tjá sig
Ef barn hefur náð nægilegum þroska skal gefa því kost á að tjá sig um mál. Þetta er þó ekki gert ef það er talið geta haft skaðleg áhrif á barnið eða hefur enga þýðingu fyrir úrslit málsins.

Engin ákveðin viðmiðun er um aldursmörk í þessu sambandi en eftir því sem barn verður eldra hafa óskir þess meira vægi.

Dómari getur sjálfur rætt við barn eða falið sérfræðingi að gera það, eins og sagt er frá hér að framan.

Framkvæmd forsjárákvörðunar

Ef sá sem barn dvelst hjá neitar að afhenda það réttum forsjármanni getur forsjármaður gert kröfu um það fyrir dómi að honum verði afhent barnið.

Ef sá sem barn er hjá neitar þrátt fyrir úrskurð dómara að afhenda barnið eða gefa upplýsingar um dvalarstað þess getur sýslumaður lagt á dagsektir.

Ef sýslumaður þarf að sækja barn á grundvelli úrskurðar dómara skal fulltrúi barnaverndarnefndar vera viðstaddur til að gæta hagsmuna barnsins. Sýslumaður getur einnig leitað liðsinnis lögreglu við að sækja barn og skulu lögreglumenn þá vera óeinkennisklæddir.

Eyðublöð og nánari upplýsingar

Um foreldraskyldur og forsjá barns er nánar fjallað í V. kafla barnalaga, um dómsmál vegna ágreinings um forsjá barns í VI. kafla og um framkvæmd forsjárákvörðunar í VII. kafla barnalaga.
Samningur foreldra um sameiginlega forsjá og meðlag
Samningur um forsjá annars foreldris og meðlag
Samningur foreldra um tímabundna sameiginlega forsjá og meðlag
Samningur um tímabundna forsjá annars foreldris og meðlag


Barnalögin í heild sinni er að finna hér: http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003076.html


Greinargerð með frumvarpinu sem varð að lögunum er að finna hér: http://www.althingi.is/altext/128/s/0181.html
Í greinargerðinni er að finna skýringar við alla kafla laganna og sérstakar skýringar við einstakar greinar þeirra.


Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Barnalög > Upplýsingar

www.domsmalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

Verkefni

  • Yfirlit
  • Málaflokkar
  • Stofnanir
  • Nefndir
  • Alþjóðlegt samstarf
  • Barnalög
  • Birting laga og stjórnvaldsfyrirmæla
  • Bótamál
  • Brottnámsmál
  • Dómstólar
  • Dómtúlkar og skjalaþýðendur
  • Erfðamál
  • Fangelsismál og fullnusta refsinga
  • Fasteignir
  • Gjafsókn
  • Greiðsluaðlögun
  • Happdrættismál
  • Hjúskapur
  • Kirkjumál og trúfélög
  • Kosningar
  • Lögmenn
  • Lögregla og ákæruvald
  • Mannanöfn
  • Mannréttindi
  • Mansal
  • Neytendamál
  • Persónuréttarmál
  • Persónuvernd
  • Réttarfar
  • Réttaraðstoð vegna nauðasamninga
  • Ríkisborgararéttur
  • Schengenmálefni
  • Sifjamál
  • Skaðabætur
  • Skipulagsskrár
  • Sýslumenn
  • Útlendingamál
  • Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald
  • Vegabréf - skilríki
  • Vopn, sprengiefni og skoteldar
  • Ættleiðingar
  • Öryggis- og björgunarmál

www.domsmalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Starfssvið
    • Skipulag
    • Starfsmenn
    • Fjármál
    • Eyðublöð
    • Merki ráðuneytis
    • Fyrirspurnir
    • Stofnanir
    • Nefndir
  • Ráðherra
    • Ævi og starfsferill
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni ráðuneytis
    • Málaflokkar
    • Alþjóðlegt samstarf
  • Útgefið efni
    • Vefrit
    • Fréttir
    • Skýrslur ráðherra til Alþingis
    • Skýrslur til dómsmálaráðherra
    • Skýrslur til alþjóðlegra nefnda
    • Skýrslur frá alþjóðlegum nefndum
    • Ýmislegt útgefið efni
  • Lög og reglugerðir
    • Þýdd lög og reglugerðir - enska
    • Þýdd lög og reglugerðir - önnur mál
  • Annað
    • Staðsetning
    • Aðgengisstefna
    • Efnisorð
    • Hafa samband
    • RSS þjónusta

    • Stjórnarráð Íslands

    Ráðuneyti:

    • Forsætisráðuneytið
    • Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið
    • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
    • Félags- og tryggingamálaráðuneytið
    • Fjármálaráðuneytið
    • Heilbrigðisráðuneytið
    • Iðnaðarráðuneytið
    • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
    • Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
    • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
    • Umhverfisráðuneytið
    • Utanríkisráðuneytið

    Aðrir vefir

    • Stjórnartíðindi
    • Lögbirtingablað
    • Reglugerðasafn
    • Mannanafnaskrá
    • Þjóðskrá
    • Vegabréfavefur
    • Kosningavefur
    • island.is

    Samskipti

    Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið - Skuggasundi - 150 Reykjavík - Kt.: 500169-7619 - Kort - postur@dmr.stjr.is - Fyrirvari - Aðgengisstefna
    Sími 545 9000 - Bréfasími 552 7340 - Skrifstofur ráðuneytisins og skiptiborð eru opin frá 08:30-16:00 virka daga.

    Leit á vefsvæðinu


    Útlit síðu:

    • Stærra letur
    • Minna letur
    • Nota mínar stillingar

    Tungumál

    • Enska

    Flýtival

    • Veftré
    • Hafa samband

    • Veldu ráðuneyti

    Þetta vefsvæði byggir á Eplica