Barnalög
Um faðerni barna, forsjá, umgengni og meðlag er fjallað í barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum. Á þessari síðu er að finna upplýsingar um helstu reglur og sjónarmið sem eiga við á þessu sviði og er þeim ætlað að gefa foreldrum yfirlit yfir málaflokkinn en ekki er um tæmandi upplýsingar að ræða.
Hér er einnig að finna ýmis eyðublöð til að nota í málum á sviði barnaréttar auk þess sem hægt að nálgast barnalögin og greinargerð með frumvarpi til barnalaga.
Hér að neðan eru tenglar á síður sem fjalla nánar um nokkra kafla barnalaga
- Móðerni og faðerni - Fjallað er um móðerni og faðerni barns í I. kafla barnalaga og um dómsmál til feðrunar barns í II. kafla.
- Forsjá barns - Um foreldraskyldur og forsjá barns er nánar fjallað í V. kafla barnalaga, um dómsmál vegna ágreinings um forsjá barns í VI. kafla og um framkvæmd forsjárákvörðunar í VII. kafla barnalaga.
- Umgengni - Fjallað er um umgengnisrétt í VIII. kafla barnalaga.
- Meðlag - Fjallað er um framfærslu barna í IX. kafla barnalaga.
