Laga- og mannréttindaskrifstofa
Hlutverk laga- og mannréttindaskrifstofu er að hafa umsjón með gerð lagafrumvarpa og reglugerða á vegum ráðuneytisins og störfum nefnda, sem vinna að löggjafarmálefnum og mannréttindamálum. Þá hefur sviðið umsjón með samskiptum ráðuneytisins við nefndir Alþingis vegna löggjafarmálefna, annast yfirlestur og samræmingu svara til umboðsmanns Alþingis og sinnir erlendum samskiptum öðrum en þeim sem eru á stjórnsýslusviði annarra sviða.
Lagasvið tekur einnig þátt í stefnumörkun í faglegum málaflokkum á starfssviði ráðuneytisins í samvinnu við viðkomandi fagskrifstofur. Lagasvið fylgist með störfum nefnda er vinna að löggjafarmálefnum, og skipaðar eru af öðrum ráðuneytum og ráðuneytið hefur tilnefnt fulltrúa í.
Útgáfa Stjórnartíðinda fer fram á skrifstofu sem og umsjón með útgáfu lagasafns.
Laga- og mannréttindaskrifstofa fer einnig með miðlun upplýsinga frá ráðuneytinu, þ.m.t. gerð fréttatilkynninga, vefrita, umsjón heimasíðu og útgáfumála.
Helstu málaflokkar laga- og mannréttindaskrifstofu eru:
|
|
