Starfshópur til að setja reglur um flutning á hættulegum farmi um jarðgöng(lokið)
Starfshópur til að setja reglur um flutning á hættulegum farmi um jarðgöng
Á fundi Alþingis 15. desember 2000 var samþykkt svofelld þingsályktun um flutning hættulegra efna um jarðgöng:
"Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja reglur um flutning á hættulegum efnum um jarðgöng.
Í reglunum verði m.a. kveðið á um hvort slíkir flutningar skuli leyfðir og þá með hvaða skilyrðum, þ.e. flutningstækjum, ökuhraða, eftirliti og hvort loka skal göngum fyrir annarri umferð meðan flutningurinn fer fram."
Dómsmálaráðuneytinu hefur verið falin framkvæmd þingsályktunar þessarar og hefur ráðuneytið sett á fót starfshóp í mars 2001 til að fjalla um efni hennar.
Í starfshópnum eiga sæti:
Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður, formaður
Gestur Guðjónsson, verkfræðingur, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Guðmundur Gunnarsson, yfirverkfræðingur, tilnefndur af Brunamálastofnun
Hjálmar Björgvinsson, aðalvarðastjóri, tilnefndur af ríkislögreglustjóra
Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri, tilnefndur af Vegagerðinni
Ingimundur Einarsson, varalögreglustjóri, tilnefndur af lögreglustjóranum í Reykjavík
Víðir Kristjánsson, deildarstjóri, tilnefndur af Vinnueftirlitinu.
Sandra Baldvinsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneyti er ritari starfshópsins
Starfshópurinn hefur lokið störfum og skilað skýrslu.
