Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra
Ögmundur Jónasson er fæddur í Reykjavík 17. júlí 1948. Hann tók við embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra hinn 2. september 2010. Hann er jafnframt samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Foreldrar: Jónas B. Jónsson, fæddur 8. apríl 1908, dáinn 1. apríl 2005, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík og kona hans Guðrún O. Stephensen fædd 30. október 1914, húsmóðir. Maki: Valgerður Andrésdóttir, fædd 12. janúar 1949, erfðafræðingur. Foreldrar maka: Andrés Björnsson og kona hans Margrét Helga Vilhjálmsdóttir. Börn: Andrés fæddur 1974, Guðrún fædd 1979 og Margrét Helga fædd 1981.
Menntun: MA í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi 1974. Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969.
Ögmundur Jónasson var kjörinn alþingismaður fyrir Alþýðubandalag og óháða árið 1995. Frá árinu 1999 hefur Ögmundur setið á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Ögmundur var þingmaður Reykvíkinga á árunum 1995 til 2003, hann var þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður frá árinu 2003 til 2007 og frá 2007 hefur hann verið þingmaður Suðvesturkjördæmis.
Ögmundur var formaður þingflokks óháðra 1998 – 1999 og formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs frá 1999.
Nefndastörf á Alþingi:
- Allsherjarnefnd, 1995 – 1997 og 1998 – 1999
- Heilbrigðis- og trygginganefnd, 1995 – 1996
- Félagsmálanefnd, 1997 – 1998
- Kjörbréfanefnd, 1999 – 2007
- Sérnefnd um stjórnarskrármál, 1999 – 2003, 2004 og 2005 – 2007
- Efnahags- og viðskiptanefnd, 1999 – 2007
- Efnahags- og skattanefnd, 2007 –
- Félags- og tryggingamálanefnd, 2007 –
- Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA, 1999 – 2003
Starfsferill:
- Formaður BSRB frá 1988
- Stundakennari við Háskóla Íslands frá 1979
- Fréttamaður RÚV 1978 – 1988, þar af í Kaupmannahöfn 1986 - 1988
- Stundaði rannsóknir við Edinborgarháskóla og ýmis hlutastörf 1974 – 1978
- Kennari við grunnskóla Reykjavíkur 1971 – 1972
Stjórnarseta í félögum:
- ETUC, Samband evrópskra verkalýðsfélaga
- NFS, Samband norrænna verkalýðsfélaga
- NTR, Samband opinberra starfsmanna á Norðurlöndum
- NOFS, Samband norrænna starfsmanna í almannaþjónustu
- PSI, Heimssamband launafólks í almannaþjónustu
- Varamaður í stjórn BSRB
- Formaður Starfsmannafélags Sjónvarps
